Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag
25.4.2014 | 23:29
Fuglarnir eru að flykkjast til landsins!
Ég varð vör við fyrstu sílamávana í mínu hverfi þann 3. apríl (105 Rvk). Kríjan er komin þangað fyrir nokkru síðan. Líklega um miðjan apríl. Ég gef fuglum stundum snemma á morgnana og mávurinn, hrafninn og smáfuglar eru fljótir á staðinn til að næla sér í. Ég er ekki nógu mikill fuglasérfræðingur, en ég held að þetta sé kríjan sem hefur verið þarna á sveimi.
Það er ekki mikið um æti fyrir fugla hér á höfuðborgarsvæðinu eftir að fiskvinnsla lagðist að mestu leyti niður, ég tala nú ekku um fiskimjölsverksmiðjuna á Kletti sem lagði upp laupana fyrir rúmum áratug. Hver man ekki eftir stóra strompinum sem var felldur árið 1999 ef mig minnir rétt með ártalið.
![]() |
Krían kom á sumardaginn fyrsta |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
20.4.2014 | 01:12
Er réttlætanlegt að hafa þessa fjallgönguleið opna yfirhöfuð?
Þetta er alltof hættulegur ferðamannastaður. Og sem hefur tekið allt of mikinn toll, bæði af innfæddum sem og áhugafjallgöngumönnum.
Mér veður hugsað til foreldra þeirra Íslendinga sem eru nú staddir í grunnbúðunum. Hvernig ætli þeim líði, vitandi vits að 'börn' þeirra ætli á fjallið.
Það ætti að LOKA ÞESSU DÆMI á stundinni. Tveir Íslendingar fóru á fjallið 1988 og komu aldrei til baka. Það virðist ekkert geta stöðvað fjallgöngumenn. Anna þeirra fór á fjallið, þrátt fyrir að hann átti von á barni. Barni sem fékk aldrei að hitta pabba sinn.
Hugsaðu þér, t.d að ef einhverjar fjallaferðir hér á Íslandi væru svona hættulegar, þannig að innfæddir og áhugamenn væru að láta lífið við klifur og/eða á jöklum, sem væri hægt að telja á báðum fingrum, yrði eitthvað gert í málinu? Yrðu slíkar ferðir stöðvaðar?
Það eina sem ég veit, að ferðir á Vatnajölul hafa ekki verið stöðvaðar, þrátt fyrir óbeint dauðsfall af völdum falls í jökulsprungu hafi átt sér stað. Kannski þarf fjöldagröf til að eitthvað yrði gert í að stöðva svona svaðilfarir. - En ég veit ekki með Everest.
![]() |
Þurftu að hlaupa frá snjóflóðinu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 01:23 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
18.4.2014 | 01:29
Verður vinsæll - þarf ekki að skeina
![]() |
Berlusconi mun starfa á hjúkrunarheimili |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 01:47 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
18.4.2014 | 00:48
Hvað læra nemendur í "Yale World Fellows"?
Það sem mé finnst merkilegt, eða ómerkilegt, við þennan fréttaflutning, er að það kemur ekki fram
neitt um hvað þessi einstaklingur er að fara að læra. Bara að hún hafi komist að á einhver námskeið, og ekki síðan söguna meir. Það væri meiri frétt ef hún sjálf svaraði bloggum frá okkur og segði okkur hvaða námskeið hún hefði áhuga á að sækja í Yale og fleira. - En þetta er Ísland í dag: allt í fyrirsagnastíl - lítið innihald. :)
![]() |
Þóra Arnórs á leið í Yale |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
5.4.2014 | 22:00
Dularfullt hvarf malasískrat farþegaþotu.
Þetta hvarf þotunnar er með ólíkindum. Virðist hafa flogið af leið, í allt öfuga átt en stefnt var að. Og enginn um borð hafð reynt að hringja úr gsm símum sínum um að eitthvað óeðlilegt væri á seiði (nema atriðum sé haldið leyndum fyrir heimsbyggðinni). En það sem hefur oft gerst, er að siglingatæki flugféla verða óvirk, þegar óþekktar flaugar, eða diskar, komast í nánd við jarðneskar flugvélar. Til eru nokkur þekkt tilvik er flugvélar hafa horfið og/eða farist eftir að hafa komist í nánd við óþekkt fljúgandi fyrirbæri.
Þess vegna dettur manni í hug að malasíska þotan hafi flogið á móts við óþekkt fyrirbæri. En auðvitað eru engin yfirvöld tilbúin tll að tilkynna um eitthvað slíkt. - Enda mannkynið ekki tilbúið til að frétta um slíkan atburð. A.m.k. ekki að mati bandarískra yfirvalda. Enda yrði hrun í þessum buisness sem heitir flug, ef eitthvað óeðlilegt fréttist sem gæti gerst á flugleiðum almennra farþega.
Á sjöunda áratugnum, hér á Íslandi, þegar bandaríski herinn var hér á Keflavíkurflugvelli, fórust tvær bandarískar orustuþotur úti fyrir ströndum Reykjaness. Herinn varð var við ókennilega hluti á flugi úti fyrir ströndum Íslands og sendi strax tvær á loft. Þær fórust. Fóru í sjóinn. Herinn náði þeim upp. Aðstandendur flugmannanna var sagt að þeir hefðu verið á hefðbundnu eftirlitsflugi. Þeir sem vissu um þetta atvik, þ.e.a.s. bandaríkjamenn sem voru að vinna hjá hernum þarna uppi á vellli, máttu ekki kjafta frá þessu atviki. Sá sem sagði frá þessu á sínum tíma, í viðurvist aðila sem starfaði á vegum bandarísku stjórnarinnar við rannsóknir á UFO, snéri sér að veggnum á skrifstofunni þegar hann sagði honum frá atfvikinu. En hann yrði uppvís að segja einhverjum að þessu atviki suður af Keflavík, þá gæti hann átt á hættu að missa eftirlaun sín.
En svona er þetta - þó að við lesum ýmislegt í fréttum að þá fáum við barta að vita örlíið smá brot af sannleikanum.
![]() |
Er flugritinn fundinn? |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
31.1.2014 | 20:43
Er hvalabjórinn kannski einskonar sláturbjór?
Hvalabjórinn vakti athygli mína og keypti ég mér eina flösku af þessum þorrabjór fyrr í kvöld, en er reyndar ekki búin að smakka, þar sem hann er í kælingu í ísskápnum.
En ég velti fyrir mér hvort þau efni sem eru í bjórnum, hvalamjölið, sem er unnið úr þarmainnihaldi hvalsins, sé nokkuð verra en það efni sem notað er í slátur úr íslensku sauðkindinni. Þ.e. blóð, mör, og maginn sjálfur og annað.
En é hlakka til að smakka mjöðinn af hvalnum síðar í kvöld, í tilefni af þorranum 2013.
![]() |
Þarmainnihald í hvalbjórnum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
17.1.2014 | 19:38
Farþegar Strætó bs. eins og síld í tunnu
Samstarfskona mín tekur strætó frá Norðurbænum í Hafnarfirðinum snemma á morgnana til að mæta til vinnu kl. 9. Vagninn er stútfullur nánast alla leið til Reykjavíkur og fær hún kannski sæti þegar vagninn stoppar við HÍ við Hringbraut. Nokkrum mínútum áður en hún yfirgefur vagninn.
Á fimmtudaginn, 16. jan. heyrði hún í talstöð vagnsins að strætisvagn (veit ekki hvaða leið það var) hefði þurft að skilja 20 væntanlega farþega eftir á einhverri stoppustöð.
Þetta gengur ekki. Þetta er mjög svo slök þjónusta við farþega Strætó bs. Ef borgaryfirvöld vilja aðað einkabílum fækki í miðborginni og víðar, verður virkilega að bæta almenningssamgöngur á höfuðborgarsvæðinu. Sérstaklega á annatímum á morgnana.
Ég sjálf nota Strætó bs. töluvert, en reyndar ekki þessar fjölförnu leiðir í úthverfin, þannig að dags daglega upplifi ég mig ekki eins og síld í tunnu í strætisvagni.
Hef orðið vör við að margir bílstjórar hjá fyrirtækinu eru pólskir. Þetta eru mjög viðkunnalegir starfsmenn hjá Strætó bs. enda veit ég til þess að pólskir starfsmenn á Íslandi eru upp til hópa til fyrirmyndar og eftirsóttir.
En mikilvægt er að borgaryfirvöld sjái þegnum sínum fyrir samgöngum við hæfi til að þeir komist almennilega til og frá vinnu dags daglega.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 19:45 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
28.12.2013 | 00:48
Jólakveðja úr óvæntri átt
Mig langar að segja ykkur frá símtali sem ég fékk á jóladag, fyrir utan símtöl frá aðilum úr nánustu fjölskyldu.
Góður kunningi minn hringdi, sem bar upp erindi sitt við mig, en óskaði mér jafnframt: "Marry Chrismas and a Happy New Year." Þar sem kunninginn er múslimi frá Sýrlandi og hefur búið hér á landi í einhvern tíma (en restin af fjölskyldu hans komst hingað til lands úr hremmingunum í haust), þótti mér vænt um að fá þessa kveðju. Ég spurði hann: "Are you celebrating something." Og þá átti ég auðvitað við íslensku jólin. "A little bit" sagði hann.
Ég á nú eftir að heyra betur í honum og fá að vita hvernig hann og hans fjölskylda upplifir íslensk jól. En mér finnst alltaf áhugavert að spjalla við nýbúa þessa lands, sem ég geri oft.
Og oftar en ekki spyr ég hvernig þau halda jól í sínu landi, eða jafnvel hér. Eða réttara sagt, hvað hafið þið í matinn á jólunum?
"Saltfisk" svaraði einn góður kunningi minn. Svarið kom mér á óvart. Enda ekkert ójólalegra. En viðkomandi er frá Portúgal, og saltfiskur skal það vera, þó að kunninginn sé landfastur hér og tali vel þokkalega íslensku, og frúin er frá Brasilíu, þannig að hún fattar kannski ekki hversu ójólalegur saltfiskurinn er.
E
2.8.2012 | 00:51
Ragna var frábær í leiknum gagnvart þeirri hollensku.
Mér fannst áhugavert að horfa á þennan leik. Ég er enginn Olympiyu áðdáandi, þannig að ég sé að fylgjast kerfisbundiö með Ol í Bretlandi. En ég fylgdist með leik Rögnu við þá Hollensku, og fannst skemtilegt að sjá hversu sterk Rag a var; sú hollenska þurfi að hafa mikið mikið fyrir hlutunum, til að hafa roð við Rögnu. Til hamingju Ragna með þinn arangur a OlL 2012.
![]() |
Ragna leggur spaðann á hilluna |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
28.7.2012 | 23:22
Góð frétt af opnun Iceland
Gott að lesa jákvæða frétt á mbl.is varðandi opnun Iceland Jóhannesar. Vonandi tekst Jóhannesi að reka fyrirtæki án þess að vera böggaður af útrásarvísingum. Enda fyrirtækið byggt á erlendri fyrirmynd en ekki öfugt. Og líka gott að lesa frétt á mbl.is sem er ekki morandi í stafsetningar- og innsláttarvillum.
Og afsakið mig ef slíkar villur henda mig í þessu bliogi. (Þegar ég blogga hér, birtist letrið svo smátt, að ég á stundum erfitt með að lesa yfir. Annað hvort er talvan hjá mér með vírus, eða að maður verður að borga fyrir að blogga til að letrið sé í eðlilegri stærð, en það er önnur saga).
![]() |
Margmenni við opnun Iceland |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |