13.11.2015 | 23:54
Ekki spurning núna um þriðju heimstyrjöldina heldur
Hryðjuverkaárás II. Hryðjuverkaárás I, var árásin á Charlie Hebdo, í upphafi árs. Aðstæður í heiminum eru að verða mjög óöruggar. Stórborgir virðast verða fyrir barðinu á hefndarverkamönnum.
Svona aðstæður er eitthvað sem ég hef óttast. Þetta ástand getur haft áhrif á bæði lands- og heimsvísu. Þegar stríðs- eða hryðjuverkaástand fer í gang, heldur fólk að sér höndum og heldur sig heima. Þetta getur valdið hruni í ferðamannaiðnaði víða.
En það þrennt, sem mér finnst standa uppúr, varðandi það sem hefur einkennt árið 2015 (ætlaði ekki að nefna þetta fyrr en i árslok), er árásin á Charlie Hebdo, E-bola faraldurinn í Afríku og fjöldi flóttamanna frá Afríku og öðrum löndum til Evrópu.
En mig grunaði ekki að ég þyrfti að bæta á listann enn einni hryðjuverkaárásinni sem gerð var í París í kvöld.
Ástandið í heiminum er að verða hryllilegt og mikilvægt fyrir lönd að herða landamæragæslu þar sem það er hægt og að efla leyniþjónustur allra landa í Evrópu, til að sporna við og góma hryðjuverkamenn.
Þetta eru hryðjuverkamenn | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt 14.11.2015 kl. 00:04 | Facebook
Athugasemdir
Fransmenn lærðu bara ekkert af Hebdo. Eða svo virðist.
Evrópa þarf bara að manna sig aðeins upp.
Ásgrímur Hartmannsson, 14.11.2015 kl. 00:52
Já, sammála. En alltaf virðist vera erfitt að vita hvar þeir halda sig og hvar þeir ætli að láta til skarar skríða næst. En gott hjá Frökkum að leita á öllum sem mættu á leikinn!!! Annars hefði orðið skelfilegt blóðbað á þessum leikvangi.
Ingibjörg Magnúsdóttir, 18.11.2015 kl. 02:37
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.