10.1.2009 | 21:03
Ekkert betra að gera í kreppunni en að búa til börn!
Bandarísku klámkóngarnir hafa greinilega skemmtilegan húmor og notfæra sér hann í miðri kreppunni:
"Larry Flynt, sem gefur út klámtímaritið Hustler, og Joe Francis, sem er maðurinn á bak við Girls Gone Wild myndböndin, segja að Bandaríkjamenn séu að missa kynhvötina. Þeir hafi of miklar áhyggjur af efnahagsástandinu og því að geta greitt reikningana um hver mánaðarmót."
En það er eitt annað í þessu, sem snilldarklámkóngarnir hafa ekki tekið með í
reikninginn (og þá eru þeir líklega bara að 'ljúga') er að þegar kreppir að, hefur fólk
ekkert annað betra að gera en að búa til börn. - Og það gerir það.
Kreppan kemur á engan hátt í veg fyrir kynlífslöngun, þó
að klámkóngarnir staðhæfa annað, líklega bara í gamni og eru vitanlega að auglýsa sinn bransa í leiðinni, enda er þetta besta auglýsingaplott sem ég hef séð lengi.
Kreppan hefur kannski gert mann agndofa og hálf
máttlausan, vegna óvissu um það sem verða skal, en alls ekki á kynferðislegan hátt.
Nú verður gaman að sjá, og reikna út, hversu mörg börn munu fæðast í byrjun júní 2009 (þau komu þá undir í byrjun október 2008) Og hversu mörg börn munu fæðast í júlí 2009, þ.e. þau sem komu undir í nóvember 2009 o.s.frv.
Mannlegt eðli er einmitt þannig að þegar eitt starf fellur niður með viðkomandi ábyrgð, t.d. þegar einstaklingur verður atvinnulaus, fær sá hinn sami meira svigrúm til að sinna öðrum störfum.
Ríkisstyrkt klám? | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 21:20 | Facebook
Athugasemdir
klámiðnaðurinn er eins og annar iðnaður og finnur fyrir samdrætti. hmm drætti
allavega. þá dragast tekjurnar þar saman á krepputímum eins og annarsstaðar. graðir finna sér annan farveg en dýrt pornið.
bandaríska ríkið hefur miklar skatttakjur af klámiðnaðinum og hefur því hagsmuna að gæta.
Brjánn Guðjónsson, 10.1.2009 kl. 21:51
Já, og nú er bara að sjá og bíða hvort bandarísk stjórnvöld láti sig hafa það að styrkja klámiðnaðinn með fjárframlögum. Þegar þetta er skrifað, hafa engin svör borist. A.m.k. ekki opinberlega :)
Ingibjörg Magnúsdóttir, 13.1.2009 kl. 02:56
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.