Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag

Það þurfti Rannsóknarskýrlsu Alþingis til ...

að aðilar hér í stjórnsýslunni færu að átta sig á eigin stöðu. Og biðust afsökunar; eða segðu af sér, ef það átti við. - Fjölmargir stjórnmálamenn (fyrir utan útfararvíkingana) eru búnir að vera í bullandi afneitun, eða allt þar til rannsóknarskýrslan kom út. Og það er virðingarvert að þeir eru að núna að fatta "þetta" og eru að segja af sér einn af öðrum, eða biðjast afsökunar. Það er virðingarvert af þeirra hálfu. Ég bjóst heldur ekki við öðru, eftir að skýrslan kom út s.l. mánudag.


mbl.is „Mér finnst ég hafa brugðist“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Orðrómur á vefnum frá haustinu 2008, reynist réttur.

Spjallið á vefnum reyndist kannski betri en engin þerapía, eftir að íslenska fjármálakrísan hófst og felldi Glitni banka. Maður fékk vissulega vægt sjokk og var jafnvel haldinn áfallastreituröskun eftir fall þessa banka. Við gátum spjallað og rætt um þetta hrun Glitnis, og rætt um hina bankana í leiðinni, sem okkur grunaði að væru að fara sömu leið. Ég man að einhvern tíma á þessum dögum, eða vikum, eftir fall Glitnis, var einhver einstaklingur sem sagði að stjórnendur bankans hefðu ekki haft neinn hemil á stærstu eigendum bankans. Og ég minnist líka annarar umræðu um að Fjármálaeftirlitið hafi einnig verið í erfiðleikum með að hafa hemil á þessum banka. Man þetta ekki orðrétt, en skv. Rannsóknarskýrslunni, þá er þetta satt; en ég hafði heldur enga vantrú á þessu á sínum tíma, þó að maður verði að hafa fyrirvara á því sem sagt er og skrifað hér á netinu. En ég er er vísa í umræður mínar og margra annara inni á Malefnin.com sem áttu sér stað haustið 2008.
mbl.is Sprenging í útlánum til FL og Baugs eftir stjórnarskiptin í Glitni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Lágmarkskrafa að íslenskir stjórnámamenn tali ÍSLENSKU

Var að lesa 7 hefti Rannsóknarskýrslunnar í dag og hnaut um ummmæli Össurar, eins og kemur fram hér í fréttinni, að "dósera." - Össur er að lýsa því þegar Davíð kemur inn á ríkisstjórnarfundinn 30.9.08: "Hann kemur þarna og "dóserar." - Ég velti því fyrir mér hvað þetta merkir. Og Davíð bara ekki dóseraði, en skv. orðum Össurar var hann "ofsalega reyttur og tættur" þegar hann mætti inn á fundinn. Þetta staldraði ég líka við: þegar mikið liggur við, og þegar einstaklingur er undir álagi, og ekkert smáu álagi, því að miklar líkur voru á að jafnvel íslenska ríkið jaðraði á barmi gjaldþrots: þá spyr ég: hver getur sofið, eða hefur tíma, rænu eða orku á að fara í sturtu, greiða sér, eða hafa sig til við slíkar aðstæður? Efast um að ég gæti það, því að orkan færi í að hugsa næsta leik.

En maður gerir kröfu um að stjórnmnálamann, hvað þá ráðherrar, tali íslnensku, þannig að almenningur skilji, þegar þessir ríkisstarfsmenn mæta í Kastljósið og Silfrið og aðra þætti.

Ég hef átt í vðræðum við fólk sem hefur upplifað það sama og ég: að horfa uppá einstaklinga mæta í hina ýmsu þætti og tala þannig mál (lesist= sletta ensku aðallega) að þetta lið er í rauninni ófært um að tala íslensku. Málið að er það eru svo margir þarna úti, sem kunna ekki ensku, en horfa á þessa þætti, þannig að það er miður að ummælendur í spjallþáttum hafa það að kæk að nánast fjórða hvert orð sem fellur af vörum þeirra, sé á erlendu tungumáli. 

Bestu kveðjur, Inga. P.S. Ég á nokkra "sto."


Er þetta bara ekki gálgafrestur?

Þýski bankinn DekaBank gerir skaðabótakröfu á hendur íslenska ríkinu (lesist = okkur skattborgurunum) og krefst 58 milljarða króna bóta vegna neyðarlaganna frá október 2008. Og svo verður framtíðiin að leiða í ljós, hvernig þetta mál fer. Atriði sem tengjast íslenska bankahruninu eru flókin og málaferli í tengslum við þau, geta tekið mörg ár. Við verðum að vera þolinmóð; einnig gagnvart íslenskum aðilum sem taldir eru sekir í íslenska bankahruninu.
mbl.is 58 milljarða króna kröfu vísað frá
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Skýrslan - verður erfitt að afla sér eintaks á mánudag????

Ég átti erindi niðrí miðbæ, 101, nú í morgun laugardaginn 10. apríl. Kippti Fréttablaðinu með mér, þegar ég gekkl út úr húsi og renndi yfir það í strætó. Ég las að fólk væri farið að skrá sig á kauplista hjá bókabúðum hér bæ, þ.e. kauplista fyrir Rannsóknarskýrslu Alþingis.

Eftir að hafa keypt mér morgunmat í 10-11 í Austurstræti ásamt öðru góðgæti, fann ég mig tilknúna að skreppa inn í Eymundsson í Austurstræti og athuga hvort ég gæti keypt Rannsóknarskýrslu  Alþingis, þegar hún kæmi út.

Mér var vel tekið þarna, og starfsmaður nokkur hóaði mér upp á aðra hæð búðarinnar, þar sem hún tók niður nafn og símanúmer mitt. 

Aðspðurð sagðist hún ekki vita neitt um skýrsluna; í hve mörgum eintökum verslunin fengi hana, o.s.frv., og að Eymundsson væri með margar búðir, þannig að hún vissi alls ekki hversu mörg eintök verslunin fengi. 

Ég sagðist vilja panta eintak, og með samviskusemi skráði hún hjá mér nafn og símanúmer, og að vinnulagið hjá þeim væri að þeir myndu hringja í hvern og einn á listanum.

Ég nefndi við hana hvort að það væri ekki bara best að mæta í búðina á mánudagsmorgninum, og var hún ekki ósamþykk því. Og að spyrð kostaði skýrslan kr. 5.990.- kall.

Þegar ég hafði yfirgefið búðina og gekk áleiðis fram hjá Pósthúsinu í humáttina að Bæjarins bestu, hitti ég einn góðkunningja minn. Sagði ég honum að ég hefði verið að "tryggja mér" kaup á Rannsóknarskýrslu Alþingis, með því að skrá mig á lista í Eymundsson.

Jú, hann kannaðist við þetta: skýrslan væri að koma úr prentun. Í 6 þúsund eintökum. Fyrsta prentun.

Ég hugsaði með mér, að það væri akkur í því að ná sér í skýrsluna í fyrstu prentunar útgáfunni.

Næsta vika verður kannski skrýtin: hún fer kannski öll í að lesa þessa skýrslu ... fyrir utan önnur skylduverkefnil.  En vonandi verður lestur skýrslunnar þess virði að kannski hunsa skylduverkefnin. ... Það er eins gott að skýrslan verði lestursins virði!

 


Kall stelur "slátri og kjúlingi" og karlar ræna banka að innan ,,,

... hver verður settur inn fyrir hvað, og hver af þessum körlum fær lengstu fangelsisvistina? Eða réttara sagt, hver af þessum körlum sleppur við fangelsisvit fyrir rán?


mbl.is Stal slátri og kjúklingi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Árni Johnsen var látinn sitja inni fyrir misferli ...

... en þó að eignir hans hafi ekki verið frystar í því tilfelli (og ekki ástæða til), var það sem hann var látinn sitja inni fyrir, tittlingaskítur samanborðið við fjárhæðir sem téðir útrásarvíkingar mjólkuðu út úr íslensku bönkunum, sem voru hlutafélög á markaði. - Munu þeir segja eitthvað, dómararnir, eða munu þeir þegja þunnu hljóði. - Fólk hér á landi hefur MIKLAR áhyggjur af að ákveðnir aðilar muni sleppa við viðeigandi refsingu, og hvað þá fangelsisvist, í því tilfelli að þeir hafi svo góð sambönd; t.d. innan Frímúrarareglunnar.

En auðvitað verðum við að spyrja að leikslokum.


mbl.is Eignir auðmanna frystar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Karlinn stendur við sitt - Sannfæringu sína.

Vilhjálmur var í viðtali Milli mjalta og messu fyrr á árinu. Þar tók hann fram að hann flygi ekki með flugfélaginu Iceland Express. Vilhjálmur hefur gagnrýnt harðlega á undanförnum misserum hvernig íslensk hlutafélög voru rekin. Iceland Express tengist því miður einum af hrun-körlum Íslands og þess vegna var þetta tímabær sveifla hjá Vilhjálmi, að geta afneitað verðlaunum af þessu tagi. Greinilegt er að stjórnendur þáttarins hafi ekki unnið heimavinnuna sína og það er nú bara spurning um hvort RÚV sé að kóa með fyrirtækjum sem eiga sér miður góða viðskiptasögu.

En Vilhjálmur er sjalfum sér sannkvæmur og ég hvet lesendur þessa bloggs til að lesa viðtalið við Vilhjálm. Líklega er hægt að kaupa það á diski hjá Útvarpi Sögu, þar sem viðtalið fór fram.


mbl.is Afþakkaði gjafabréf í Útsvari
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Á nú löggan á Hvolsvelli að rannsaka sjálfa sig?

Top Gear fékk leyfi viðkomandi lögregluyfirvalda til að aka utan vega og í grennd við gosið. Leyfi þetta hefur líklega verið fengið hjá lögreglunni á Hvolsvelli. Og nú fer Umhverfisstofnun fram á það að sýslumaðurinn sjálfur á Hvolsvelli rannsaki málið. Sem sagt, embættið á að rannsaka sjálft sig (látið mig vita ef mér skjátlast í þessu). Er fólk ekki í lagi, eða hvað? Eru aðilar ennþá í "2007" fóbíunni???


mbl.is Lögregla rannsaki akstur Top Gear
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ekki hissa á aðgerðum Deutsche Bank - þeir leita að peningunum sínum ...

... þetta er nefnilega aðalmálið, varðandi bankahrunið: hvert fór fjármagn eigenda Landsbankans rétt fyrir hrun, og í kjölfar hrunsins???  Er sérstakur ríkissaksóknari að leita að þessu fé, eða jafnvel annar saksóknari á Íslandi?

Stóra spurningin er: komast aðilar upp með að flytja fé úr landi án þess að nokkur aðili fái við því spornað. Ég hefði haldið að í tæknivæðingu nútímans, að þá ætti að  vera auðelt að rekja peningagreiðslur út úr bönkum, og svo áfram. Nema ef ákveðnar greiðslur hafi verið teknar út í reiðufé og síðan handfluttar t.d. úr landi. En það sem ég fæ ekki séð, svona í fljótu bragði, að hvernig á einhver banka- eða fjármálagutti að geta grætt á því að flytja íslenska peninga úr landi og skipta þeim þar í annan gjaldeyri.

En þegar betur er að gáð, þá ku þetta hafa átt sér stað, þ.e. að gárungarnir hafi verið að versla með íslenskar krónur og keypt fyrir þær erl. gjaldreyri. Og hví ekki aðilar sem ráku hér bankana: þeir kunnu örugglega á alla klæki til að millifæra íslenskar krónur til útlanda og braska með þetta þar, þó að ég kunni ekki skil á þessu.

En virðingarverðar stofnanir, sem fjárfestu í íslenskum bönkum, eiga heimtingu á að þeirra kröfum sé sýnd full virðing og að þeir fái alla þá aðstoð föllnu bankanna til að þeir geti endurheimt eitthvað af sínu fé, sem sem þeir lögðu í þetta 'glæpabrask' íslensku bankanna, eins og þeir voru orðnir eftir einkavæðinguna.

Ef ekki, þá verður Ísland stimplað, sem hvert annað  bananalýðveldi.


mbl.is Rannsaka Landsbankann
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband