12.11.2016 | 00:58
Viðlagasjóðshúsunum var komið upp fyrir flóttafólk
frá Vestmannaeyjum á sínum tíma. Fólki sem flúði eldgosið í Eyjum 1973. Mér komu þessi viðlagasjóðshús í hug um daginn, þegar umræða um húsnæðisskort hælisleitenda bar á góma.
Mér datt í hug hvort ekki væri hægt að koma upp svona viðlagasjóðshúsum fyrir hælisleitendur. Ég man eftir svona húsum í Hveragerði, þar sem ættingjar mínir bjugguf í eftir gosið. Þau komu fyrst og gistu hjá okkur og fluttust svo í Hveragerði.
Ég man eftir heimsóknum þangað. Þetta voru svona gámahús og í fínu standi sem heimili. Minnir að þetta hafi verið kallaðir "Lundakofar" á sínum tíma. Þessi hús voru reist á bersvæði, eða í óskipulögðu hverfi. Og voru síðan fjarlægð með tíð og tíma eftir því sem Eyjamenn fluttu sig aftur út í Eyjar.
En til að mæta húsnæðisskorti, væri hægt að endurtaka söguna og koma upp svona viðlagasjóðahúsum/gámahúsum á óskipulögðum svæðum til að mæta húsnæðisþörf vegna hælisleitenda.
Rannsakar Viðlagasjóðshúsin | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.