19.3.2010 | 23:26
Frábært framtak hjá Öskubusku.
Ég er hlynnt því að fólk kaupi sér notuð föt/skó og hef smá reynsu af því. Versla stundum í Kolaportinu og þar hef ég fengið fínar flíkur, sem hafa kannski bara verið notaðar í örfá skipti. Og ég hef líka fundið þarna skó og stígvél, nánast ónotuð fyrir 1000 kall.
Ég veit að það er mikil eftirspurn eftir notuðum fötum í þjóðfélaginu og það er af hinu góða að við fáum núna Öskubuskuvef. Ég á eftir að skoða hann nánar, en þetta er slóðin http://oskubuska.notando.is/
Notuð föt á netinu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.