Bloggfćrslur mánađarins, september 2023

Draumur fangans

og líklega draumur okkar allra, er ađ sjá vígahnött amk einu sinni á lífsleiđinni, og ég tala nú ekki um UFO, en ţađ er önnur saga.

En "Draumur fangans" er heiti á lagi sem Ellý og Vilhjálmur sungu, ásamt fleiri lögum eftir 'Tólfta september' sem voru mjög vinsćl hér fyrr á árum. Tólfti september var höfundarheiti Freymóđs Jóhannssonar.

Og ţessai magnađi vígahnöttur ţarna fyrir Norđan birtist einmitt ađ kvöldi 12. september 2023. Veit ekki klukkan hvađ.

En ţađ sem mér finnst magnađ, er ađ vígahnöttur birtist á himni á landi hér áriđ 2017 og náđu einhverjir myndir af honum. Ég sá ţann vígahnött berum augum ţar sem ég var stödd úti á svölum heima hjá mér í Reykjavík. Og dagsetningin? Hvađ annađ en 12. september! Rétt fyrir kl. 22 áriđ 2017!

Ég man alltaf ţessa dagsetningu vegna lagahöfunarins Tólfta september. En ég á alltaf erfitt međ ađ muna ártaliđ, ţ.e. hvort ţetta var 2016 eđa 2017. Ţess vegna ţurfti ég ađ fletta ţví upp áđur en ég skrifađi ţetta blogg.


mbl.is Vígahnöttur beint fyrir ofan Ísland
Tilkynna um óviđeigandi tengingu viđ frétt

"Hvalstöđin" í Tjarnargötu

Í bókinni Iđnađarmenn (útg. 1987), segir Guđgeir Jónsson bókbindari (1893-1987) frá uppvexti sínum og ćvistarfi.

Segir hann ađ flest uppvaxtarár sín hafi hann unniđ međ hest og vagn sem amma hans átti, en sá sem hafi haft millugöngu um vinnuna var stjúpi hans, sem var einnig međ hest og vagn.

Áriđ 1907 segist hann hafa veriđ í "bćjarvinnu viđ ađ bera ofan í göturnar. Ţađ voru Hafnarstrćti, Austurstrćti, Suđurgata og Tjarnargata sem var embćttismannagata. Ţá fékk ég ađ vita hvađa nöfn bćjarbúar höfđu gefiđ húsunum viđ Tjarnargötuna í daglegu tali.

Björn augnlćknir bjó í húsinu númer 18. Ţađ var kallađ Glyrnan vegna starfs húsráđanda. Hús Sigurđar Briem póstmeistara var kallađ Póstkassinn, hús Klemensar Jónssonar Klemmukassinn og ráđherrabústađurinn Hvalstöđin. ... "(bls. 156).

Ţegar ég las ţessa frásögn fyrir nokkrum dögum, velti ég ţví fyrir mér af hverju ráđherrabústađurinn hafi fengiđ ţetta viđurnefni. En leitin ađ ţví var auđveld, međ ţví ađ gúggla ţetta, og kom upp frásögnin af norska hvalveiđiforstjóranum fyrir vestan sem seldi Hannesi Hafstein húsiđ, sem var síđan flutt til Reykjavíkur og reist í Tjarnargötunni, á vef Stjórnarráđsins.


mbl.is Hauskúpa finnst í Ráđherrabústađnum
Tilkynna um óviđeigandi tengingu viđ frétt

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband