17.11.2019 | 23:32
Sauðkindin!
"Ekkert er yndislegram en að ganga út á fjárvanginn á vorin ..."
Myndin sem fylgir fréttinni er af eiginkonu leikarans Chris Pratt í fylgd sauðfés í Ameríku. Ég dáist að henni í sauðabúskapnum. En mér finnst þær íslensku sætari og fallegri. Og bragðst líklega betur!
Líkir konu sinni við íslenskan fjárhirði | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
16.11.2019 | 00:12
Nú "förum við í" dag íslenskrar tungu!
Auðvitað vildi ég semja aðra fyrirsögn á þetta blogg.
En Dagur íslenskrar tungu er í dag, laugardaginn 16. nóvember.
Ég hef tekið eftir því að fjölmiðlafólk á ljósvakamiðlunum notar flatt tungumál (þeir leggja ekki áherslu á að nota fjölbreyttan orðaforða, en við eigum fjöldan allan af góðum sagnorðum), og margir viðmælendur sletta ensku í viðtölum.
"Nú förum við í auglýsingar" heyrist oft og einatt á útvarpsstöðvum. Stundum nota þáttastjórnendur aðrar sagnir til að tilkynna þetta. En allt of sjaldan.
Eftirfarandi dæmi um "að fara í" :
5.10.2018 - Gettu betur (Dís): "þá förum við í 9. bjölluspurningu."
4.10.2018 - Hringbraut - Fréttaþátturinn 21: "Við ætlum að fara næst í þá sögu sem hefur ekki enn verið sögð ..." Viðtal við Hagsmunasamtök heimilinna.
5.10.2018 - Gettu betur (Dís): "Nú förum við í stutt skilaboð."
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 01:05 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
15.11.2019 | 23:40
Kannski finnur Andrew prins fyrir elliglöpum ...
Eftir langa mæðu heyrist loks í Andrew prins í viðtali í bresku sjónvarpi og 'þykist' hafa brugðist fjölskyldu sinni með því að dvelja á heimili Epstein.
En þykist ekkert muna eftir Gislaine, sem send var sérstaklega til Bretlands til að þjóna prinsinum á sínum tíma. En mynd af þeim saman ásamt þriðja aðila hefur farið eins og eldur um sinu um netið.
Ekki trúverðugur konungsmeðlinur.
En samt fær hann eitt prik hjá mér: hann þjónaði í breska hernum sem þyrluflugmaður og var á fullu í Falklandseyjastríðunu 1982.
En eftir að hann lauk starfi sínu hjá breska hernum hefur hann líklega skort spennandi verkefni, og lenti í vinfengi með perranum Epstein, og fékk tækifæri til að stunda kynlíf með stúkum undir lögaldri.
Brást fjölskyldunni með því að dvelja hjá Epstein | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
11.11.2019 | 00:31
"Hjólum í helvítis tíkina"
Níð gagnvart dýrum hefur viðgengist í aldaraðir hér á landi. Ef fólk talar illa um einhvern er honum/henni oft líkt við dýr. Bændur hér fyrr á árum notðu dýrin sín sem viðmið í tungumálinu. Þetta voru dýrin þeirra, og dýrin sem sum hver fæddu þá og klæddu.
Þeir báru enga virðingu fyrir dýrunum sínum.
Sama á við þá sem reka dýragarða. Ég vorkenni dýrum sem eru lokuð inni í búrum. Þetta á við t.d. garða eins og Húsdýragarðinn og dýragarða sem maður heimsótti sem krakki í útlöndum.
En það er ekki nóg að vera á móti dýragörðum einungis: við þurfum að byrja á okkur sjálfum: nota ekki dýranýð í daglegu tali.
Ekki segja að ég sé t.d. helvítis belja eða bykkja með því að blogga þetta.
Betra er að nota orð eins og t.d.: helvítis frekja, herfa, skrukka.
Bara, "plís" hættum að níðast á dýrunum okkar í tungumálinu.
Kalla Húsdýragarðinn fangelsi og helvíti | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
6.11.2019 | 23:57
Leikendur Play velja ekki ódýrasta staðinn
til að fagna stofnun nýs félags. Það er haldið upp á þetta með því að þeir "fögnuðu ærlega" skv. mbl.is, 9 metrum neðanjarðar í Bláa Lóninu. Grunar að þetta sé rándýr staður. En þetta er þó innanlands.
En þetta minnir mig svolítið á hvernig starfsmenn í fjármálafyrirtækjum og öðrum fyrirtækjum hér fyrr á árum, ca. 9 klst. fyrir hrun skemmtu sér í árshátíðar- og bónusfyrirtækjaferðum: þeir átu gull!
Veit ekki hvort Bláa lónið bjóði upp á gull í drykkjum sínum þarna neðanjarðar. En hver veit, kannski lumar Lónið á einhverjum töfra málmum þarna neðanjarðar.
Forstjóri Play fagnaði í vínkjallara Bláa Lónsins | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |