Þurfa dómstólar kannski að nota eldri aðferðir við dauðarefsingu?

Dauðarefsingar hafa alltaf sætt gagnrýni. Og sú gagnrýni á rétt á sér.

Þetta er viðkvæmt málefni. Og alltaf er spurning um hvort réttlætanlegt er að taka einstakling af lífi sem hefur framið glæp. '

Á Englandi til forna voru menn limlestir á torgum úti, þar sem þeir voru settir í togvélar og gapastokka, og útlimir þeirra smám saman togaðir af búknum.

Glæpamenn voru hálshöggnir og hengdir áratugum saman. Ekki er langt síðan að yfirvöld í Líbanon tóku upp á því aftur að hengja glæpamenn aftur, eftir nokkurt hlé. Og eftir því sem mig best minnir voru glæpamenn hengdir í Englandi allt fram á 6. áratug síðustu aldar.

Hér á Íslandi tíðkaðist það t.d. að drekkja konum á Þingvöllum. Man ekki nákvæmlega fyrir hvað. Fróðlegt væri ef einhver sem les þetta, væri til í að rifja þau mál upp fyrir okkur.

Og í Bandaríkjunum máttu glæpamenn búast við dauðarefsingum vegna morða og öðrum hryllilegum glæpum hér fyrr á árum. Refsingunni var fullnægt með því að sá hinn sakfelldi var sendur í rafmagnsstólinn. 

Síðar tók "dauðasprautan" við. Þannig að gamli rafmagnsstóllinn hefur verið í hvíld. En þessi rafmagnsstóll var gerður ódauðlegur í skáldsögu/mynd frægs bandarísks skáldsagnahöfundar, sem heitir "Græna mílan." 

En nú vaknar sú spurning, vegna þessarar fréttar, um að lyfjafyrirtæki í Evrópu, ætli liklega að fara að hætta að senda lyf sem notuð eru í dauðarefsingum, til Bandaríkjanna.

Hvað gera Kanar þá? Munu þeir endurvekja gamla rafmagnsstólinn ("old Sparky" minnir mig aö hann væri kallaður í skáldsögunni, og jafnvel raunveruleikanum). 

Eða verða dauðarefsingar afnumdar að fullu og öllu í Bandaríkjunum?

Það verður fróðlegt að fylgjast með þessu málefni á næstunni!


mbl.is Skortur á lyfi til dauðarefsinga
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Kvenfólk var sett í hylinn fyrir að eignast börn utan hjónabands.  Eitthvað segir mér að færri hafi lent í hylnum en lög kváðu á um.  Bara persónuleg tilfinning.

Annars veit ég ekki af hverju kaninn þarf nauðsynlega *þetta* ákveðna lyf.  Það er enginn sérstakur skortur á bráðdrepandi efnum sem má nota í staðinn.

Í Utah mega menn ráða hvort þeir eru sprautaðir eða skotnir.  Einn komst í fréttirnar fyrir skömmu fyrir að velja seinni möguleikann.  (Þeir velja sjálfir.)

Ásgrímur (IP-tala skráð) 23.1.2011 kl. 01:33

2 Smámynd: Ingibjörg Magnúsdóttir

Áhugavert. Líklega lentu færri í hylnum vegna þess að það var hægt að redda málunum fyrir horn í tíma (finna karlmann sem gekkst væntanlegu barni í föðurstað).

Kannski heldur Kaninn það að framfylgja dauðadómi með sprautu, sé mannlegra en önnur efni sem þú vitnar í, eða nota rafmagnsstólinn. Er samt ekki hissa á að þessi í Utah hafi valið seinni kostinn: bæng, bæng: og það er búið.

Ingibjörg Magnúsdóttir, 25.1.2011 kl. 03:03

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband